Hlíðarfótur 13
Reykjavíkurborg / Reykjavík
Laus til leigu glæsileg íbúð að Hlíðarfæti 13, Hlíðarenda, Reykjavík
Íbúðin er 80,5 fm og er þriggja herbergja á þriðju hæð. Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og svalir. Íbúðin er parketlögð með fallegu harðparketi, vandaðar og fallegar innréttingar á eldhúsi og baðherbergi. Íbúðinni fylgja gardínur, ljós í öllum rýmum, ísskápur og uppþvottavél. Lyfta er í húsinu og stutt er í alla þjónustu og menntastofnanir.
Nánari lýsing
Forstofa: Gengið er inn í íbúðina í rúmgott anddyri, þar er rúmgóður fataskápur.
Eldhús/sofa: Fallegt opið eldhús með stórri eyju. Eldhús er samliggjandi stofu og borðstofu. Úr stofu er útgengt á svalir með fallegu útsýni yfir flugbrautina.
Baðherbergi: Baðherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi. Sturta og tengi fyrir þvottavél. Flísalagt í hólf og gólf með fallegum flísum.
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápum
Geymsla: 14,3 fm geymsla í sameign hússins
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 382.000 kr. og er verðtryggt samkvæmt vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti, þrif á sameign og stæði í bílakjallara.
Leigutaki greiðir rafmagn samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn ásamt lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð skal nema þriggja mánaða leigu.
Kostir þess að leigja hjá Íveru
Ívera er eitt af leiðandi leigufélögum landsins. Við rekum íbúðir til langs tíma, svo þú getur treyst á öruggt heimili til framtíðar.
• Viðhald og þjónusta innifalin
• Persónuleg og skjót þjónusta
• Traustur langtímaleigusali
Upplýsingar
3 Herbergi
2 Svefnherbergi
1 Badherbergi
80,5 Fermetrar
Íbúðanúmer:308