Dalsmúli 3

Reykjavíkurborg / Reykjavík

Mynd 1
Skoða myndir
  • Herbergi
  • Herbergi
  • Herbergi
  • Herbergi
Mynd 1
Herbergi
Herbergi
Herbergi
Herbergi
Herbergi
Herbergi
Herbergi
Herbergi
Herbergi
Herbergi
Skoða myndir

Glæsileg og nútímaleg íbúð til leigu í nýbyggingu að Dalsmúla 3 í Reykjavík

Velkomin í glæsilega þriggja herbergja 80,7 fm íbúð að Dalsmúla 3 á frábærum stað í Reykjavík. Íbúðin er á fyrstu hæð í nýbyggingu og skartar fallegum og nútímalegum innréttingum og vönduðu efnisvali. Íbúðin er staðsett á afar skemmtilegu og gróðursælu svæði í Reykjavík, þar sem stutt er í eitt helsta útivistarsvæði borgarinnar. Með Laugardalinn, Laugardalslaug og aðrar afþreyingar í næsta nágrenni, er þetta frábært kostur fyrir alla sem vilja búa miðsvæðis með náttúru og afþreyingu við hendina.

Nánari lýsing

Við inngang íbúðarinnar er forstofa með fataskáp. Allar hurðir eru svartar sem gefa heimilinu stílhreint yfirbragð. Tvö herbergi eru í íbúðinni, bæði með fataskápum. Stofa og eldhús eru í björtu og opnu alrými. Eldhúsið býður upp á gott skápapláss og innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja íbúð. Úr stofurými er gengið út á smá verönd sem ekki er orðin fullkláruð. Baðherbergi er með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsla 8,1 fm að stærð, fylgir íbúðinni.

Leiguverð og kostnaður

Leiguverð er 366.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.

Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.

Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.

Skilyrði fyrir leigu

Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakarvottorði.

Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.

Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.

Kostir þess að leigja hjá Íveru

Ívera er eitt af leiðandi leigufélögum landsins. Við rekum íbúðir til langs tíma, svo þú getur treyst á öruggt heimili til framtíðar.

• Viðhald og þjónusta innifalin

• Persónuleg og skjót þjónusta

• Traustur langtímaleigusali

Hér er hægt að skoða 3d sýningu af íbúð:

Upplýsingar

Laus:

3 Herbergi

2 Svefnherbergi

1 Badherbergi

80,7 Fermetrar

Íbúðanúmer:106

Ívera @ 2026 Allur réttur áskilinn