Smyrilshlíð 10
Reykjavíkurborg / Reykjavík
Glæsileg íbúð til leigu að Smyrilshlíð 10, Hlíðarenda, Reykjavík.
Íbúðin er 84,6 fm og er þriggja herbergja á annarri hæð. Íbúðin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og svalir. Íbúðin er parketlögð með fallegu harðparketi, vandaðar og fallegar innréttingar á eldhúsi og baðherbergi.
Íbúðinni fylgja gardínur, ljós í öllum rýmum, ísskápur og uppþvottavél. Lyfta er í húsinu og stutt er í alla þjónustu og menntastofnanir.
Allar frekari upplýsingar veitir starfsfólk Íveru í síma 517-3440 eða á ivera@ivera.is.
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í íbúðina í rúmgott anddyri með fataskáp.
Eldhús/stofa: Fallegt opið eldhús með stórri eyju. Eldhús er samliggjandi stofu og borðstofu. Úr stofu er útgengt á svalir.
Baðherbergi: Baðherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi. Sturta og tengi fyrir þvottavél. Flísalagt í hólf og gólf með fallegum flísum.
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápum
Geymsla: 6,2 fm geymsla í sameign hússins
Leiguverð: 365.000 kr á mánuði. Innifalið í leiguverði er hiti, þrif á sameign og stæði í bílakjallara.
Upplýsingar
3 Herbergi
2 Svefnherbergi
1 Badherbergi
84,6 Fermetrar
Íbúðanúmer:214