Þórðarsveigur 34-36
Reykjavíkurborg / Reykjavík
Þægileg og hagnýt 4 herbergja íbúð í barnvænu hverfi til leigu
Þér sem líkar að búa í hæfilegri fjarlægð frá miðborginni og geta skroppið í útivistina mun líða vel hér. Hér er auðvelt að hafa heimilislegt. Í Þórðarsveignum býrðu nálægt skólum og leiksvæðum. Margar gönguleiðir eru í kringum íbúðina sem hægt er að skreppa í göngutúra. Einnig er frábær þjónusta við hverfið, til að nefna veitingastað, matvöruverslun, banka og byggingavöruverslun. Í Grafarholtinu hefur þú allt til taks til að hafa það notalegt.
Velkomin heim!
Eignin
Innan íbúðar:
Gengið er inn í íbúðina í forstofu með þremur svefnherbergjum á hvorri hönd og baðherbergi, innbyggður skápur er fyrir yfirhafnir. Þegar gengið er lengra tekur stofan við með opnu eldhúsi. Þar ytra eru svo svalirnar með stórum gluggum.
Ytri svæði:
Geymsla er í kjallara hússins og er hún 7,8 fm.
Innréttingar
Gólfefni: Parket
Eldhús: Tengi fyrir ísskáp og uppþvottavél, bakaraofn, helluborð og eldhúsvifta fylgir íbúðinni.
Baðherbergi: Flísar á gólfum og veggjum, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Gæludýr
Þórðarsveigur er gæludýravæn eign, leyfilegt er að vera með eitt gæludýr í íbúðinni svo lengi sem umgengnisreglum er fylgt.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 366.000 kr á mánuði og er tengd vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti og rekstur á sameign.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Upplýsingar
4 Herbergi
3 Svefnherbergi
1 Badherbergi
92,2 Fermetrar
Íbúðanúmer:209