Eyravegur 28-30

Sveitarfélagið Árborg / Selfossi

Mynd 1
Skoða myndir
  • Herbergi
  • Herbergi
  • Herbergi
  • Herbergi
Mynd 1
Herbergi
Herbergi
Herbergi
Herbergi
Herbergi
Herbergi
Herbergi
Herbergi
Herbergi
Skoða myndir

Glæsileg 2ja herbergja íbúð í nýju húsi við Eyraveg

Til leigu er einstaklega falleg og vel hönnuð 51 fm 2ja herbergja íbúð á 2.hæð í vönduðu lyftuhúsi að Eyravegi 28–30 á Selfossi. Um er að ræða nýja eign þar sem áhersla hefur verið lögð á nútímalegt skipulag, góða birtu og þægindi í daglegu lífi.

Nánari lýsing

Gengið er inn í forstofu með fataskáp. Þaðan tekur við bjart og opið alrými þar sem stofa og eldhús mynda samfellda og rúmgóða heild. Úr stofu er útgengt út á svalir Í íbúðinni er rúmgott svefnherbergi með góðu skápaplássi. Baðherbergið er rúmgott og vel búið, með upphengdu salerni, sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Íbúðin er vel búin þar sem gardínur og lýsing fylgja, og bílastæði eru næg við húsið til sameiginlegra nota.

Staðsetning eignarinnar er afar eftirsóknarverð, miðsvæðis á Selfossi, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, verslanir, íþróttasvæði og fjölbreytt útivistarsvæði. Hér er því um að ræða þægilegt og vel staðsett heimili sem sameinar nútímalega hönnun og góð lífsgæði.

Leiguverð og kostnaður

Leiguverð er 248.000 kr. á mánuði og er verðtryggt samkvæmt vísitölu.

Innifalið í leiguverði er hiti og rekstur sameignar.

Leigutaki greiðir rafmagn samkvæmt mæli.

Skilyrði fyrir leigu

Leggja þarf inn umsókn ásamt lánshæfismati og sakavottorði.

Trygging eða ábyrgð skal nema þriggja mánaða leigu.

Hægt er að velja um tryggingarfé á lokuðum reikningi, bankaábyrgð frá viðskiptabanka eða ábyrgð frá Leiguskjóli.

Kostir þess að leigja hjá Íveru

Ívera er eitt af leiðandi leigufélögum landsins. Við rekum íbúðir til langs tíma, svo þú getur treyst á öruggt heimili til framtíðar.

• Viðhald og þjónusta innifalin

• Persónuleg og skjót þjónusta

• Traustur langtímaleigusali

Upplýsingar

Laus:

2 Herbergi

1 Svefnherbergi

1 Badherbergi

51 Fermetrar

Íbúðanúmer:204

Ívera @ 2026 Allur réttur áskilinn