Austurhólar 4C
Sveitarfélagið Árborg / Selfossi
Vel skipulögð 2ja herbergja íbúð laus til leigu í nýju húsi!
Velkomin inn í fallegt og vel skipulagt 62,6fm heimili að Austurhólum 4 á Selfossi. Íbúðin er á jarðhæð með sér inngangi. Austurhólar er í vel staðsettu hverfi og stutt er í þjónustu, leik,- og grunnskóla, íþrótta og útivistarsvæði.
Nánari lýsing
Gengið er inn í forstofu með fataskáp, ásamt stórum geymsluskáp. Rúmgott svefnherbergi er í íbúð með góðu skápaplássi, baðherbergi er með upphengdu salerni, sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Komið er inn í stórt og rúmgott alrými sem mynda eldhús og stofu, gengið er úr stofu út á rúmgóðar ogstórar svalir með glæsilegu útsýni.
Gardínur, ljós, uppþvottavél, ísskápur og frystihólf fylgir eigninni.
Í sameign er hjóla,- og vagnageymsla. Fjöldi bílastæði er við húsið sem eru sameiginleg og rafbílahleðslukerfi hefur verið sett upp.
*Myndir eru af sambærilegri íbúð.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 263.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.
Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Upplýsingar
2 Herbergi
1 Svefnherbergi
1 Badherbergi
62,6 Fermetrar
Íbúðanúmer:103