Austurhólar 4

Sveitarfélagið Árborg / Selfossi

Mynd 1
Skoða myndir
  • Baðherbergi
  • Baðherbergi
  • Baðherbergi
Mynd 1
Baðherbergi
Baðherbergi
Baðherbergi
Skoða myndir

Laus til leigu nýleg og glæsileg 3ja herbergja íbúð með stóru alrými!

Velkomin inn í fallegt 82,4 fm heimili að Austurhólum 4 á Selfossi. Íbúðin er með sér inngangi af glæsilegu stigahúsi. Austurhólar er í vel staðsettu hverfi og stutt er í þjónustu, leik,- og grunnskóla, íþrótta og útivistarsvæði. Íbúðin er á 5 hæð í lyftuhúsi.

Nánari lýsing

Gengið er inn í forstofu með fataskáp, úr forstofu er 7,8 fm geymsla á hægri hönd, á vinstri hönd er gengið í annað herbergi íbúðar, einnig er gengið beint inn í stórt alrými íbúðar, sem mynda stofu og eldhús. Í eldhúsinu er gott skápapláss,úr stofurýminu er gengið út á stórar og góðar svalir með glæsilegu útsýni. Tvö svefnherbergi eru í íbúð, bæði með góðum fataskápum, baðherbergi er með upphengdu salerni, sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Gardínur, ljós, uppþvottavél, ísskápur og frystihólf fylgir eigninni.

Í sameign er hjóla,- og vagnageymsla. Fjöldi bílastæði er við húsið sem eru sameiginleg og rafbílahleðslukerfi hefur verið sett upp.

*Myndir eru af sambærilegri íbúð, íbúð leigist án húsgagna.

Leiguverð og kostnaður

Leiguverð er 293.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu.

Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.

Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.

Skilyrði fyrir leigu

Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.

Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.

Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.

Upplýsingar

Laus:

3 Herbergi

2 Svefnherbergi

1 Badherbergi

82,4 Fermetrar

Íbúðanúmer:507

Ívera @ 2026 Allur réttur áskilinn