Klettamói 1
thorlakshofn
Laus til leigu í nýju og glæsilegu húsi að Klettamóa 1 í Þorlákshöfn
Velkomin inn í fallegt og vel skipulagt þriggja herbergja 70,5 fm heimili að Klettarmóa 1 í Þorlákshöfn. Íbúðin er með sérinngangi af glæsilegu stigahúsi. Klettamói er í vel staðsettu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, ásamt leik, - og grunnskóla, íþrótta og útivistarsvæði. Íbúðin er á annarri hæð.
Nánari lýsing
Gengið er inn í forstofu með fataskáp, 2 rúmgóð og björt herbergi eru í íbúð með fatakáp og gardínum. Stofa og eldhús eru í sameiginlegu alrými íbúðar. Í eldhúsinu er gott skápapláss og innbyggður ísskápur fylgir íbúð, úr stofurýminu er svo gengið út á svalir. Baðherbergi er með upphengdu salerni, sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsla 6,7fm fylgir íbúð.
Hér má sjá 3D sýningu af íbúðinni:
Fjöldi bílastæða er við húsið sem eru sameiginleg, miðrými milli bygginga í götunni er svæði ætlað sem leiks- og útivistar.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er 269.000 kr á mánuði og er tengt við vísitölu.
Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign.
Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða leiguskjól.is
Upplýsingar
3 Herbergi
2 Svefnherbergi
1 Badherbergi
70,5 Fermetrar
Íbúðanúmer:203