Klettamói 4
thorlakshofn
Fallegt, bjart og vel skipulagt þriggja herbergja heimili laust til leigu
Velkomin í þriggja herbergja heimili að Klettarmóa 4 í Þorlákshöfn. Íbúðin er 71,1 fm að stærð, staðsett á annarri hæð með sérinngangi úr snyrtilegu stigahúsi.
Um er að ræða einstaklega þægilega staðsetningu þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, íþróttasvæði og fjölbreytta útivist — tilvalið fyrir bæði einstaklinga og fjölskyldur.
Nánari lýsing
Gengið er inn í forstofu með góðum fataskáp. Í íbúðinni eru tvö rúmgóð og björt svefnherbergi, bæði með fataskápum og gardínum.
Stofa og eldhús mynda opið og notalegt alrými sem býður upp á góða samveru. Í eldhúsinu er gott skápapláss og innbyggður ísskápur fylgir. Frá stofu er útgengt á svalir þar sem hægt er að njóta útiveru í rólegu umhverfi.
Baðherbergið er snyrtilegt með upphengdu salerni og sturtu. Í íbúðinni er tengi fyrir þvottavél og þurrkara, auk þess sem geymsla er innan íbúðar.
Við húsið eru fjölmörg sameiginleg bílastæði og á milli bygginga er skemmtilegt svæði ætlað leik og útivist.
Leiguverð og kostnaður
Leiguverð er kr. 286.000 á mánuði og er tengt vísitölu.
Innifalið í leigu er hiti og rekstur sameignar.
Leigutaki greiðir rafmagn samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu
Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði.
Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Hér er hlekkur á 3D sýningu af íbúðinni:
Upplýsingar
3 Herbergi
2 Svefnherbergi
1 Badherbergi
71,1 Fermetrar
Íbúðanúmer:203